|
|
18.08.2006 19:18:10 / sing
soldið feimin sko - er að smíða aðra bloggsíðu
En skrítið ég kemst ekki á hana í mömmu tölvu
Annars er slóðin: svavaing.spaces.live.com 
Látið mig vita ef þið komist á hana!!
sing
»
06.08.2006 12:31:21 / sing
Ég var klukkuð
Hefur þú...
(x) reykt sígarettu
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
(x) verið ástfangin/n
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
(x) verið rekin/n
(x) lent í slagsmálum
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum.
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
(x) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu- því miður
(x) skrópað í skólanum
(x) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x)farið á skíði
(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
( ) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
( ) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmanna
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni (ef tjald telst með!)
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir
vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
( ) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp.
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
(x) verið gagntekin/n af post-it miðum
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur (meira að segja nýlega)
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik (með Einari Erni minnir mig)
( ) litað nýlega með trélitum
(x) sungið í kariókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera
ekki?
(x) hringt símahrekk
( ) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér? Nei en ég
lét Jónu gera það.
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n
í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) fariðí fallhlífastökk... (nei, en ég hef stokkið
teyjustökk)
(x) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig... iðjuþjálfunin mín
var einstök þegar ég átti afmæli 
Ég klukka á Jónu Mariu, Björn Inga og Berglindi Nönnu 
»
06.08.2006 11:40:17 / sing
Ég var að koma af geðdeildinni, búin að eiga frábært sumar -
mjög góðan tíma án veikinda. Fyrir 2 vikum örlaði á smá
veikindum. Ég fór að heyra raddir aftur og gera skrítna
hluti, s.s. að taka eldhúsklukkuna á stofugólfið og raða kertum í
kring.
Og ég hugsaði "ohh, ég nenni þessu ekki eina ferðina enn,
ég fer bara suður þá batnar allt" Svo ég fór suður daginn
eftir..
Ég man að ég átti góðan tíma með Laylu vinkonu. En svo fór ég að
labba og labba og það var svo kalt, var bara á hlýrabol í
rigningunni og vissi ekkert í minn haus - var alveg skíthrædd.
Svo einhvernveginn var ég stödd á geðdeildinni.. ekki búin að
vera á geðdeild lengi og treysti ekki þessu fólki, svo ég neitaði
að taka lyfin. Úff þetta er svo erfitt, var svo þreytt. Vildi
bara labba..
Ég var með hjartadrottninguna í hendi mér - ég var hún, já ég
hélt ég væri hún. og skrapaði veggina með henni - æi þetta
var erfiður og furðulegur tími bara 
Ég man að raddirnar urðu meira kræfari, og létu mig skrifa það
sem þau voru að segja. Skipanir og leiðandi setningar.
æi ég ætla bara eiga þetta fyrir mig, þetta rugl sem meikaði svo
sens.
Ég er orðin svo hundleið á geðveikinni, svo leið. Langar að lifa
eðlilegu lífi með engum röddum og engum sýnum og lifa bara í
1num heimi. En ég get ekki sagt geðveikinni upp eða selt
hana.
Ég held að fólk hefði gott af því að prófa að vera ég í 1 dag!

sing
»
09.04.2006 17:19:34 / sing
Hæ
Ég hef það fínt bara en hvar er Dagný,
sakna commentana hennar ?? Ég veit eiginlega ekki hvað ég á
að segja en vildi bara segja ykkur að ég hefði það bara fínt núna
Ég er að hugsa um eitt ákveðið sem ég er stundum soldið
spennt yfir en ég er ekki viss um það svo ég ætla ekkert að vera
tala mikið um það.
Ég heyrði í systur pabba í dag sem var í
starfsnámi á Kleppi á deild 13 - hún hefði ekki viljað sleppa
því að kynnast geðinu. Ath. hún var á sömu deild og ég var á
fyrir stuttu síðan. Anyway henni leist vel á
deildina..
bæ
sing
»
08.04.2006 00:08:01 / sing
Veeeiii - ég er búin að endurheimta
tilfinningarnar mínar aftur!!!
Nú er ég á svo fáum lyfjum að ég get
grátið ef ég sé einhvað fallegt eða hlegið og fundist margt vera
fyndið og skemmtilegt. Nei það er ekki alltaf sorg hjá
mér... bara að horfa á idol úrslitunum fékk röddina til að
bresta, og ..hvernig á ég að útskýra það, æi þegar brjóstkassinn
titrar eða með ekka eða einhvað.
Þetta gerist einmitt líka þegar ég horfi á
litlu krílin á skjá 1. Ég fer næstum því að gráta. Það er svo
gott að geta verið viðkvæm aftur og hafa dýrmætu tilfinningarnar
mínar sem gegna svo miklu hlutverki í mínu lífi - bara til að halda
geðheilsu og annað 
Nú er ég hrikalega væmin en þið völduð að
ég mundi halda áfram svo þið verðið bara að þola þetta.
En pælið í því að frá því að vera frosin
tilfinningalega vegna lyfja, finna ekki til gleði né sorgar - sem
gæti oft miskilist hjá okkur geðklofunum, þegar við bregðumst
kannski öðruvísi við áföllum eða einhverju sem snetir okkur,
bregðumst á þann hátt að annað fólk skilur okkur
ekki.
Takk - þið hafið fengið mig til að brosa,
hlæja og sjá veröldina á allt annan hátt en áður 
sing
»
06.04.2006 23:22:19 / sing
Hafið þið orðið einmanna með fólki?
Það er hægt og schizar þekkja það mæta vel. Það er bara
hreinlega þannig að maður nær ekki til fólksins sem maður er
með... eða þá að fólkið nær ekki til manns. Það er
fúlt. Maður nær ekki að nýta sér félagskap. Eins
og þegar maður reynir að losna undan miðju símtali að því að
maður er svo hræddur um að segja einhvað vitlaust eða einhvað
sem er ekki viðeigandi við ákv. samræður. Maður dettur
stundum bara út, veit ekki hvað viðkomandi er að segja eða þá
hvað maður sjálfur var að segja.. og segir þá einhvað alveg
út í hött.
Maður er alveg drulluhræddur að þetta
gerist. já, maður er orðin svo einrænn að maður getur ekki
nýtt sér samskipti sem bjóðast. Ég Hata gjörsamlega þennan
sjúkdóm sem stjórnar öllu - ég berst og berst við að hafa stjórnina
en hann hefur hana alltof oft. Ég heyrði aðeins raddir í dag
en sjómennirnir með fiskana í netinu (steingerfingarnir) veifuðu
mér meðan ég þaut framhjá í dag. Þessir skemmtilegu karlar úr
steini munu alltaf þýða einhvað fyrir mig, alltaf sýna þeir með
einhvað skemmtilegt, einhverndaginn á góðviðrisdegi mun ég kíkja á
skiltið og sjá fyrir hvað þeir standa þarna. Varla eru þeir
þarna fyrir mig 
Svo er eitt sem er einkennið að maður er
lítið fyrir aðra gefin og þegar maður er svona er hann
einmanna. Maður skiptir sér ekki að öðrum og er ekkert að
pæla í öðru fólki - kannski af því að það er svo mikið af háværu
fólki í höfðinu á manni. Svo það tekur rosa á þegar maður
reynir að fylgjast með annara lífi - æ þið vitið, afmæli,
barnsfæðingar, fermingar, veikindi og þess háttar.
sing
»
06.04.2006 12:23:28 / sing
Það var aftakaveður hérna í gær -
það var hundfúlt - frekar sorry svona, það var stutt á milli
hláturs og gráturs hjá mér, læst inni því annars hefði ég
orðið úti
það er alveg ótrúlegt að þegar tónlistin
stoppar þá stoppa ég, furðulegt.
Nú er ég að bíða eftir nýrri liðveislu sem
kemur á eftir. Nei var að hringja, er veik. Svona er að
búa í samfélagi en ekki í eigin heimi. Raddirnar segja ekki "
nei ég er veik" - nei ég má ekki fara að lofa óraunveruleikann, það
er hreinlega bara hættulegt. Þetta er nú í lagi - það kemur
önnur til að halda mér hérna megin.
Ég er að hlusta á Katie Melua - hún er
frábær alveg..
jæja - bæ
sing
»
04.04.2006 12:22:07 / sing
Ég ætla aftur að setja hérna inn
ljoð sem ég gerði fyrir þá sem hafa ekki séð það en linkurinn
virkar ekki strax hérna til hliðar en ég hlít að breyta
því.
Svona líður mér þegar ég er að vekjast af
geðklofanum:
I wanna fly
That feeling is so good, in my beautiful world - just
skip the meds and
fly. .live in my dreamworld. why wount u let me - I feel
great there. I
can´t speak to you - because I don´t hear you while I am
there.
Every time I go there - you seem so scared -every time
I end up in hospital- not knowing anything why I am
there. Don´t be
scared - it´s so beautiful there , please let me
go...
»
04.04.2006 12:12:13 / sing
jæja jæja, ég skal hugsa málið
aftur.
Málið er að þegar mér líður illa eins og í
síðustu viku þá held ég að ég sé á allra vörum en eins og núna
líður mér vel og þá er mér nokkuð sama hvað fólk segir um mig
ég skrópaði til iðjuþjálfans í dag óvart,
hélt að ég ætti að mæta á morgun - byrjunarörðugleikar á vestrinu
villta.
Þegar mér leið svona illa í síðustu viku
þá heyrði ég engar raddir - spáðu í því, ég hef ekki heyrt raddir
lengi... kannski af því að Guðfinnur tók mig af öllum þessum róandi
lyfjum, ég hef lítið farið inn í óraunveruleikann undanfarið.
En ég sé oft sýnir, ekki eins oft.. kannski er þetta bara gott
tímabil - sem ég á að njóta. Ég reyni að njóta líðandi
stundar ef hún er þá góð, en stundum hrópa ég upp "ég læt ekki
bjóða mér þetta!!!" þegar líðandi stund er djöfulleg. En það
gerðist í síðustu viku.
jú - ég skal halda áfram, en þá verðið þið
að commenta og taka tillit til þess að stundum get ég bara ekki
bloggað vegna paranoju. En samt er alveg yndislegt að fá svona góð
viðbrögð 
sing
»
03.04.2006 15:02:23 / sing
Ég hef tekið þá ákvörðun að hætta að
blogga. En aldrei að vita að ég byrji aftur á því. Ég bý bara
í svo litlu samfélagi að það er bara ekki hægt að blogga - er
svo paranoid (en það er stór partur af sjúkdómnum) að ég
farin að halda að ég sé á allra vörum
Ég er orðin aðeins hressari - það er
allavena komin annar og skemmtilegri svipur á mig. En ég fór
rosalega langt niður í þetta skiptið - enda tók Guðfinnur mig af
þunglyndislyfinu. Þunglyndi er annar partur að
geðklofa.
Þeir sem vilja geta hringt í mig eða
heilsað mér út á götu - ég hefði gaman af því 
Jæja hvað finnst ykkur um þessar
fréttir???!!
sing
»
01.04.2006 23:53:30 / sing
sorry guys - ég veit ég hef ekkert
bloggað, líðan mín er búin að vera really poor síðustu
viku. Er að drepast hreinlega úr einmannaleika.
Þegar maður er svona mikið einn þá fer maður í
sjálfvorkunnarpakkann - þið vitið.. ég hef alltaf verið
félagslega furðuleg... þannig er það enn með mig, bara í
verra mæli. Ég á bara mjög erfitt með að sækja mér
félagskap - so please be cammó with me.. 
já þetta er alveg satt - ég hef
verið með jarðarfara svip á mér síðan ég kom að sunnan - búin að
vera ásamt öðru fólki í næstum 2 mánuði og kem svo heim í
íbúðina - alein. Ætli ég verði ekki bara að búa
ásamt fleiri geðveikum bara - svo ég geti þrifist almennilega
Ég er hjá mömmu og pabba núna - það
bjargaði mér alveg núna, að hitta fólk, en um leið og það er of
mikið af fólki er ég farin en samt vann ég sigur í dag...ég fór á
meðal fólks.. fór á árshátíð grunnskólans í Bolungavík. Ef ég
lendi í aðstæðum þar sem ég þarf að tala mikið þá er ég farin þegar
mér líður svona.
Svo þegar einhverjar umræður byrja þá skil
ég þær ekki - eins og það sé verið að tala hebresku - eins og ég sé
frá einhverri allt annari vídd. Svo ég þegi bara - það gæti
nebbla verið að ef ég byrjaði að tala að þá muni enginn skilja mig,
eins og ég sé að tala kínversku.
Svo fór ég lítið út fyrir dyr þessa viku
vegna víðáttufælnina sem minnir oft á sig. Eins og hvað mig langaði
oft á Langa manga bara til að sjá fólk - gat það hreinlega bara
ekki.
já já svona er það..
sing
»
27.03.2006 18:19:06 / sing
Ég er eins og í leiðslu, það hafa
allir fréttir um hvað ég sé frábær eftir meðferðina, vona
bara að ég valdi ekki neinum vonbrigðum. Já ég sagðist vera
eins og í leiðslu, ég er varla að trúa því að ég sé komin
heim. Á föstudaginn var ég á flugvellinum frá 8.30 -
tvö með allt mitt hafurtask, úff hvað það var þreytandi- svo
er það fljúgið, já það var hopp og hí og tralalla - þið vitið
hvað ég meina. Flugfreyjan spurði á leiðinni út,
"plönturnar hafa lifað þetta af?" En þá átti ég eftir að fara
með þær í óveðrið fyrir vestan - jú jú, það sést á þeim en
þær eru sprelllifandi í dag. Þessar 3 eru kleppara
plönturnar mínar já ég hef soldið gaman af blómum og
bara öllum flottum gróðri.
Ég átti góða helgi með fjölskyldunni, en
það vantar alltaf einhvað þegar Sigga systir og Bóas (hundurinn) er
ekki. Bóas á núna heima hjá pabba sínum. En Sigga
er orðin Keflvíkingur eða sko hún flutti þangað. Aðstæður eru
bara alltaf að breytast. Það átti engin von á því að ég kæmi vestur
aftur 
Það verður bara að viðurkennast að ég er
hálf ringluð og búin að vera það alla helgina. Búin að sofa eins og
brjálaðingur. Fór í ræktina í dag og í viðtal og varð sjókarl
þegar ég var komin heim. Það er kolvitlaust veður hér, blinda
snjór. Jæja mánudagshópurinn er næst á dagskrá
seeyou
sing
»
23.03.2006 18:17:46 / sing
Allt klappað og klárt í flug á
morgun - verð náttla klifjuð í vélinni - með 3 plöntur með
mér m.a. Flestir búnir að knúsa mig og kyssa, láta mig
fara með allskonar veganesti út í lífið. já já ég er
orðin bjartsýnni en fyrst með heimferðina. Það eru
góðar líkur á að önnur liðveisla taki við af hinni sem
hætti. Búin að láta hersveitina vita að drottningin er
væntaleg á svæðið Þetta verður bara fínt, gott að
komast heim Ég kom hingað 30. jan og útskrifast á
morgun. See you...
sing
»
22.03.2006 14:17:08 / sing
Jæja - þá er bara að útskrifast - já
þú last rétt, ég útskrifast héðan á föstudag. Ég kvíði
því, ég á erfitt með breytingar, loksins þegar allt fer að
ganga vel þá er manni kastað út - en ég var svo sem búin að
fá mig fullsadda að vera hér á Kleppi, farin að þrá rúmið
mitt og sængina mína, tölvuna mína, já og heimilið
allt. En margar kvíðaspurningar vakna við þessar
aðstæður ss. hvernig á þetta eftir að ganga? Hvernig ætla ég
að höndla kvöldin? Ég verð bara að viðurkenna það - ég er
skíthrædd við lífið En ég á það til að gera úlfalda úr
mýflugu, kannski er ég að því núna. En samt, þetta er
ástæðan fyrir því að ég gefst upp - ég reyni svo mikið að
standa mig vel að ég spring, aftur og aftur. Hvernig
haldiði eiginlega að sé að reyna að funkera í 2 heimum
samtímis?? Af hverju verða allir svo hissa þegar ég
spring? Þið heyrið það að nú er ég í samfelldu
kvíðakasti - bara út af þessari mýflugu druslu.
Ég hlakka til að koma heim á ísó en kvíður
líka mikið fyrir 
sing
»
19.03.2006 16:07:24 / sing
Ég var á málþingi um hag geðsjúkra í
dag.. það hjálpatæki sem hefur hjálpað mér mest í gegnum
þessi veikindi eru iðjuþjálfar, en það var ekki minnst á þann
faghóp, ekki einu orði.. ég væri miklu verr stödd ef ég hefði
aldrei kynnst þeim. Þeir kenndu mér að finna minn
styrkleik, bera virðingu fyrir sjálfri mér á ný og kenndu mér
að nota tímann í einhvað skemmtilegt í staðin fyrir að vera í
eilifðri sjálfsvorkunn. Þegar ég lærði að bera virðingu
fyrir sjálfri mér og öllu því sem fylgir mér eignaðist ég von
á ný og draumar mínir vöknuðu. Þess vegna ber ég
virðingu fyrir iðjuþjálfum - því þeir eru lifesafers.. Þeir
hafa trú á manni og smita þá trú til okkar.
Ég er sammála því að liðveitendur þurfa að
fá hærri laun, enda eru þau í krefjandi starfi. Sem dæmi má
nefna var einn liðveitandi minn sem hætti vegna þess að hún fékk
hærri laun annarstaðar. Þannig að í dag hef ég ekki
félagslega liðveislu sem kemur mér úr
einangrun.
Ég mundi vilja að það væri starfsmaður á
launum allan sólahringin þar sem maður getur hringt og hann komið
ef einhvað væri að og gæti þá gefið sér tíma í að spjalla.
Því oft lagast hlutirnir ef maður getur talað um þá. Ef maður
geymir þá með sjálfum sér þá hleður það utan á sig og springur
- ég í geðrofsástandi send suður. You know what I mean
Hjartað fór náttla að hamast þarna inn í
mér - langaði svo að segja þessa hluti, en gerði það ekki því lokst
þegar ég fékk kraft til þess þá var ég of sein Svo
ég blogga bara um þá hér Hefði viljað sjá fleiri
notendur geðheilbrigðiskerfisins þarna og hefði viljað að fagfólk
hefði gefið notendum meira tækifæri til að standa upp og tjá
sig. Við höfum margt að segja, þetta snýst jú um
okkur.
sing
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|